14. maí 20:00

Improvision

Salurinn
5.900 kr.

Improv Ísland fagnar 5 ára afmæli spuna söngvakeppninnar Improvision með sérstakri hátíðarsýningu í Salnum Kópavogi.

Improvision er söngvakeppni með evróvisjónískum blæ þar sem öll lögin eru búin til á staðnum ásamt hljómsveit út frá tillögum áhorfenda sem munu svo fá að kjósa sigurvegara keppninnar.

Spunaleikararnir vita ekkert hvað þau eru að fara að syngja og hljómsveitin veit ekkert hvað hún er að fara að spila.

Söngur, dans, spuni og frábærir leynigestir!

Improv Ísland hefur kitlað hláturtaugar áhorfenda í Þjóðleikhúskjallaranum frá árinu 2016 og fjöldi gesta kemur aftur og aftur, enda eru engar tvær sýningar eins. Hver sýning er frumsýning og lokasýning á brakandi fersku gríni sem verður til á staðnum. Spunaleikarar skiptast á að sýna ólík spunaform og þjóðþekktir gestir kíkja í heimsókn og segja sögur úr eigin lífi sem notaðar eru í efnivið fyrir sýningu kvöldsins.

Deildu þessum viðburði

Sjá meira

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

Sjá meira