Það verður í senn jólalegt og næs í Salnum þegar þau Ragga Gísla, Jónas Sig, Hildur Vala, Jón Ólafs og Ingibjörg Turchi rugla saman reytum sínum í Salnum, Kópavogi, eins og í aðdraganda síðustu jóla. Sumir tala um súpergrúppu en þau leiða allt slíkt hjá sér. Á tónleikunum Jól og næs má heyra jólalög, sólólög og óvænt lög. Jólatónleikar sem eru engum öðrum tónleikum líkir og alveg bráðnauðsynlegir í annars ágætri flórunni.