05. maí 20:00

Karl Olgeirsson – Stillur

Ættjarðarlög og þjóðlög í jazzskotnum píanóútsetningum
4.400 - 4.900 kr.

Hljómplatan Stillur sem kom nýlega út var tekin upp á Bösendorfer flygilinn í Salnum. Það er því við hæfi að henni sé fylgt úr hlaði einmitt þaðan. „Hugmyndin kviknaði í sunnudagsbíltúr á Þingvöllum með fjölskyldunni. Öxar við ána fór að hljóma í höfðinu mínu í jazzskotinni útsetningu og ég bara varð að koma því á plötu“ segir Karl. Hugmyndin þróaðist yfir í þjóðlög og ættjarðarlög sem heyrast á nýjan og óvæntan hátt. Karl hefur komið víða við í íslensku tónlistarlífi og hefur verið tilnefndur til verðlauna fyrir kvikmyndatónlist sína og hlotið Grímu fyrir leikhústónlist og tvenn verðlaun fyrir síðustu plötu sína, Mitt bláa hjarta.

Þetta eru tónleikar sem tónlistaraðdáendur ættu ekki að missa af. Platan verður á almennilegu tilboði fyrir tónleikagesti, bæði á vinyl og geisladisk. Þetta er til dæmis óvænt og góð gjöf fyrir vini sem búa fjarri heimahögum.

Deildu þessum viðburði

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

12. maí / kl. 13:30

24. maí / kl. 20:00

Sjá meira