Flytjendur
Berglind María Tómasdóttir – bassaflauta
Bergþóra Kristbergsdóttir – klarinett
Tumi Árnason – sópran saxófónn
Karólína Einarsdóttir – stafræn vinnsla / Supercollider
Karólína Einarsdóttir
BA Nýmiðlatónsmíðar
Karólína Einarsdóttir (f. 2002) er hljóðfæraleikari, lagasmiður og tónskáld. Karólína lærði ung klassískan píanóleik við tónskólann Do Re Mi og hefur allar götur síðan verið virk við tónsköpun. Hún hefur leikið í ýmsum hljómsveitum og er til að nefna stofnmeðlimur hljómsveitarinnar GRÓU.
Við tónsköpun leggur Karólína meðal annars áherslu á frjálsan spuna, hlustun, og á að beygja – teygja – beygla – bjaga – breyta – afbaka – raska og krumpa hljóð akústískra hljóðfæra með stafrænum hætti.
Útskriftarverk
Gleypa
Hljóðin falla saman og týnast hvort í öðru,
þau umbreytast þar til ekkert er eftir nema hugmyndin um þau.
Eitt hljóð, ofið úr földum hljóðum,
hljóðin gleypa hvort annað.
Verkið Gleypa skoðar hlustun eftir eiginleikum hljóða, líkindum þeirra á milli og uppruna. Hvað hefur týnst? Hvaða hljóðum koma akústísku hljóðfærin ekki til skila? Hver er uppruni efnisins sem eyrun hlusta á og skiptir hann máli?





