Anna María Bogadóttir arkitekt bregður ljósi á sögu Kársnessins en erindi hennar byggir á vinnu við byggðakönnun fyrir Kársnes. Í máli og myndum verður farið yfir sérstöðu byggðar í sögulegu, skipulagslegu, hugmyndafræðilegu og umhverfislegu samhengi.
Fyrirlesturinn fer fram í forsal Salarins. Aðgangur er ókeypis og öll velkomin.
Um Önnu Maríu:
Anna María er arkitekt og menningarfræðingur sem leggur áherslu á menningar- og félagslegar hliðar arkitektúrs. Hún nálgast arkitektúr frá sjónarhóli hvunndagslífs í samhengi flókinna kerfa og hvata og vinnur með umbreytingu, arf og miðlun sem skapandi afl í arkitektúr. Verk Önnu Maríu og rannsóknir finna sér farveg þvert á miðla á hefðbundnum sem óhefðbundnum vettvangi.
Anna María er stofnandi ÚRBANISTAN sem gegnum ráðgjöf, rannsóknir, sýningagerð og útgáfu kemur að hugmyndafræði og úrlausnum fjölbreyttra verkefna á sviði arkitektúrs, skipulags og varðveislu sem fela í sér rýmis-, borgar-, strategíu-, samræðu- og sýningahönnun.
Anna María lauk meistaragráðu í arkitektúr frá Columbia-háskóla í New York árið 2009. Áður hafði hún starfað við menningar- og sýningastjórn í tæpan áratug og lokið M.A. gráðu í menningarfræði og M.Sc. gráðu í stafrænni hönnun og miðlun frá Upplýsingatækniháskólanum í Kaupmannahöfn.
Anna María sendi frá sér bókina Jarðsetning haustið 2022 en bókin hefur vakið mikla eftirtekt og er Anna María tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs árið 2024.