03. sep 20:00

Lúllabæ – Sigga Eyrún útgáfutónleikar

Salurinn
4.900 - 5.900 kr.

Sigga Eyrún fagnar útgáfu annarrar sólóplötu sinnar. Í þetta sinn er um að ræða frumsamin lög eftir Karl Olgeirsson og önnur falleg lög sem þau hafa sungið fyrir börnin okkar og vilja deila með heiminum. Platan kemur út á vínyl og geisladisk og verður að finna á helstu streymisveitum.

Siggu Eyrúnu og Kalla Olgeirs hafði lengi langað að gera vögguvísuplötu. En þau ákváðu að víkka hugtakið aðeins. Þetta eru að vísu lög sem þau hafa sungið fyrir börnin sín í gegnum tíðina. En ekki endilega vögguvísur sem slíkar. Bara falleg og hugljúf lög héðan og þaðan. Lög úr söngleikjum og teiknimyndum, þjóðlög og klassísk sönglög. Svo er þarna áður óútgefið lag eftir Magga Eiríks sem gaf plötunni nafnið sitt; Lúllabæ. Og þrjú lög eftir Kalla Olgeirs. Þau fengu Togga Jóns með sér á kontrabassa og Lára Björk Hall syngur með þeim í einu lagi á plötunni. Þannig að þetta er algjör draumaplata. Þau hlakka mikið til að spila þetta á tónleikum. Og fleiri lög sem passa inn í stemninguna. Það má lofa yndislegri kvöldstund í Salnum!

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

Sjá meira