22. okt 12:15

Með vaxandi styrk | Menning á miðvikudögum

Salurinn
Aðgangur ókeypis kr.

Nærandi menningarstund í hádeginu

Einar Stefánsson, bass-barítón er einn af okkar ungu og upprennandi söngvurum sem er um þessar mundir að kveða sér hljóðs í söngheiminum hér heima og erlendis með vaxandi styrk. Hann kemur fram á hádegistónleikum í Salnum í Kópavogi þann 22. október ásamt Evu Þyri Hilmarsdóttur píanóleikara og flytja þau fjölbreytta efnisskrá fyrir gesti og gangandi. Aðgangur er ókeypis og öllum opinn. Tónleikarnir eru í samstarfi við Óperudaga.

Menning á miðvikudögum fer fram alla miðvikudaga kl.12:15 á Bókasafni Kópavogs, Gerðarsafni, Salnum eða í Náttúrufræðistofu. Aðgangur á viðburðina er ókeypis og öll velkomin.

Deildu þessum viðburði

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

13. sep / kl. 13:00

Sjá meira