03. sep 17:00 – 18:30

Menningarveturinn 2026 í Kópavogi – þér er boðið

Gerðarsafn | Náttúrusafn | Bókasafn | Salurinn

Þér er boðið á hauströlt um menningarhúsin í Kópavogi þar sem haustdagskráin verður kynnt!

Velkomin á fjölbreytta viðburðadagskrá og fríar veitingar í Menningarhúsunum í Kópavogi fimmtudaginn 3. september kl. 17-18:30. Boðið verður upp á forsmekk af þeim hundruðum viðburða sem fram undan eru í menningarhúsunum á vetrarmánuðum og veitingastaðurinn Krónikan í Gerðarsafni kynnir matseðil sinn. Dagskráin samanstendur m.a. af tónlistarflutningi, örleiðsögnum og upplestri í notalegri stemningu menningarhúsanna.

Kynningin hefst í Gerðarsafni kl. 17, þar sem Kvennakórinn Blika syngur fyrir gesti og safnstjóri segir frá því sem er fram undan. Þaðan liggur leiðin í Náttúrusafnið, þar sem boðið verður upp á örleiðsögn um safnið sem er í sífelldri mótun. Á Bókasafni Kópavogs tekur forstöðumaður safnsins á móti gestum og skáldkonan Guðrún Eva Mínervudóttir verður með hugvekju. Að lokum er gengið yfir í Salinn, þar sem forstöðumaður Salarins stiklar á stóru um dagskrána fram undan, Hanna Dóra Sturludóttir tekur lagið, skálað verður fyrir haustinu og gestum boðið að bragða á úrvali veitinga frá Krónikunni.

Taktu frá daginn, mættu með góða skapið og röltu með okkur inn í menningarhaustið í Kópavogi!

Gleðilegan menningarvetur.

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

09. sep / kl. 20:00

Sjá meira