Breski tónlistarhópurinn Personal Clutter er skipaður þeim Jenni Hogan, Helen Witaker, Katherine Tinker og Rosie Middleton.
Hópurinn kemur fram á hádegistónleikum í Salnum en tónleikarnir eru liður í tónlistarhátíðinni Myrkir músíkdagar.
Aðgangur er ókeypis og öll velkomin á meðan húsrúm leyfir.
p.e.r.s.o.n.a.l.c.l.u.t.t.e.r. er tónlistarhópur skipaður konum sem skapar og flytur nýstárleg verk sem eru gáskafull á sviði en þó sköpuð eftir ströngum reglum. Kvenleiki spilar stórt hlutverk í vinnu þeirra, sem og sú fjölbreytta reynsla sem þær hafa sem listamenn og einstaklingar. Má þar nefna áhrif frá aðgerðarstefnu, tónsmíðum, dansi, kyngervafræðum, óperu og sálaraflsfræði.
p.e.r.s.o.n.a.l.c.l.u.t.t.e.r hefur hlotið lof gagnrýnenda fyrir sýningar sínar þar sem flutt eru ný verk eftir tónskáld frá Íslandi, Bandaríkjunum, Bretlandi og Þýskalandi og hafa þær pantað ný verk til að stækka efnisskrána.
Efnisskrá:
Berglind María Tómasdóttir: Nýtt verk (2022, heimsfrumflutningur)
Jessie Marino: Jesus F*cking Christ Linda (2020, Íslandsfrumflutningur)
Helgi Rafn Ingvarsson: Random Notes I Found In The Street (2020, Íslandsfrumflutningur)
Bethany Younge: Her Disappearance (2015)
Jennifer Walshe: EVERYTHING YOU OWN HAS BEEN TAKEN TO A DEPOT SOMEWHERE’ (2013)
Jenni Hogan: We Are Not A Monolith (2021, Íslandsfrumflutningur)
Menning á miðvikudögum er styrkt af lista- og menningarráði Kópavogsbæjar.