Tríó Söngkonunnar Rebekku Blöndal mun telja í eftirlætis jazz standarda Rebekku í bland við blús og frumsamið efni.
Rebekka hefur síðastliðin ár vakið mikla athygli sem jazz- og blús söngkona og komið fram við ýmis tækifæri, bæði í sjónvarpi, á tónleikum og tónlistarhátíðum. Hún hefur í tvígang verið tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna í flokki djass og blús sem flytjandi ársins og hlaut verðlaunin nú í ár fyrir söng ársins. Rebekka gaf í fyrra út plötuna Ljóð og hefur einnig sungið inn á plötur annarra listamanna. Hún lauk árið 2022 B.Mus.Ed námi í Rytmískri söng- og hljóðfærakennslu frá Listaháskóla Íslands og lauk þar áður framhaldsprófi í jazzsöng frá Tónlistarskóla FÍH og MÍT(Menntaskóla í tónlist), auk þess að hafa stundað nám við Söngskólann í Reykjavík og Complete Vocal Technique í Kaupmannahöfn.
Með henni leika þeir Daði Birgisson og Sigmar Þór Matthíasson, sem báðir eru mjög virkir í íslensku tónlistarlífi.
Fram koma:
Rebekka Blöndal – söngur
Daði Birgisson – píanó/hljómborð
Sigmar Þór Matthíasson – kontrabassi