Flytjendur
Salóme Katrín: píanó og rödd Svanhildur Lóa Bergsveinsdóttir: trommur
Ingibjörg Elsa Turchi: bassi
Tumi Torfason: trompet
Hannes Arason: trompet
Björgvin Ragnar Hjálmarsson: saxófónn
Tumi Árnason: saxófónn
Erla Hlín Guðmundsdóttir: rödd
Maria-Carmela Raso: rödd
Salóme Katrín Magnúsdóttir
BA Nýmiðlatónsmíðar
Salóme Katrín Magnúsdóttir er tónlistarkona frá Ísafirði, hvar hún steig fyrstu skrefin í sínu tónlistarnámi. Hún flutti til Reykjavíkur haustið 2015 til að nema við heimspekideild HÍ, en komst fljótlega að því að tónlistin ætti hug hennar allan. Hún kvaddi því háskólann, hóf söngnám við Tónlistarskóla FÍH og útskrifaðist þaðan vorið 2020. Síðan þá hefur Salóme gefið út sína eigin tónlist við góðar undirtektir gagnrýnenda sem áheyrenda, komið fram á ótal tónleikum bæði hérlendis og erlendis og unnið með fjölda tónlistarfólks að ýmsum verkefnum. Salóme hóf nám við tónsmíðabraut LHÍ haustið 2023, hvaðan hún mun útskrifast í vor með bakkalárgráðu í nýmiðlatónsmíðum.
Útskriftarverkefni
- Raddspuni
- Growing
- Rise With the Tide
- perfect 3
- Dagarnir líða
- death
- Within What Could Be
- Everything I Ever Wanted
- Inside
Höfundur laga og texta: Salóme Katrín Magnúsdóttir





