18. mar 13:00 – 14:30

Semjum saman

Skemmtileg takt- og tónsmíðasmiðja með Axel Inga Árnasyni

Axel Ingi Árnason, tónskáld, verður með tónsmiðju í Salnum, Kópavogi laugardaginn 18. mars kl. 13.
Sköpum saman í notalegri stund þar sem Axel Ingi kynnir fyrir krökkunum grunninn í lagasmíðum. Krakkarnir fá að spreyta sig á að semja laglínur og texta um málefni sem eru þeim hugleikin auk þess sem farið verður í skemmtilegar taktæfingar og aðra leiki.

Krakkar á aldrinum 4 – 12 ára eru hjartanlega velkomnir og foreldrar að sjálfsögðu.

Engin krafa er um tónlistarmenntun.

Aðgangur ókeypis og öll hjartanlega velkomin.

Sjáumst í Salnum.

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

Sjá meira