Hin lífsseiga spjalltónleikaröð Jóns Ólafssonar, Af fingrum fram, heldur ótrauð áfram inn í sextánda starfsvetur sinn í Salnum.
Siggi Hjálmur er kallaður Silfurfálkinn af sumum en við köllum hann Sigurð Guðmundsson. Undanfarin ár hefur hann verið í fremstu víglínu íslenskra tónlistarmanna og er jafnvígur sem hljóðfæraleikari, söngvari , laga- og textasmiður. Hljómsveit hans Hjálmar hefur fyrir margt löngu aflað sér mikils fylgis og virðingar meðal Íslendinga auk þess sem tríóið Góss sló í gegn fyrir nokkrum árum en þar er hann og meðlimur. Við kynnumst þessum magnaða listamanni í orði og æði þegar hann heilsar upp á Jón Ólafsson.