07. mar 13:00

Skólakór Kársness – Syngjandi glöð í hálfa öld!

Salurinn
1.500 - 2.500 kr.

Skólakór Kársness fagnar 50 ára starfsafmæli. Af því tilefni blásum við til afmælishátíðar í Salnum þann 7.mars 2026. Á tónleikunum, sem verða þrennir, talsins koma fram öll kórbörn í Kársnesskóla og Barnaskóla Kársness ásamt hljómsveit. Að auki verður fyrrum kórbörnum Kársness á öllum aldri boðið að taka þátt í hátíðinni. 

Stjórnendur kóranna eru Álfheiður Björgvinsdóttir, Þóra Marteinsdóttir og Þórunn Björnsdóttir. Á milli tónleika verður gestum og gangandi boðið í afmæliskaffi. 

Tónleikar kl. 13:00
Minnsti kór (1.-2.bekkur)
Miðkór Kársness (5.-6.bekkur)
Skólakór Kársness (8.-10.bekkur)

Tónleikar kl. 14:30
Litli kór (3.-4.bekkur)
Stórikór (7.bekkur)
Skólakór Kársness (8.-10.bekkur))

Tónleikar kl. 16:30
Stjörnukór Kársness – Opin æfing fyrrverandi félaga

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

Sjá meira