Söngleikjastælar snúa aftur vegna fjölda áskoranna. Bjarni Snæbjörns og Sigga Eyrún mæta í Salinn með tónleikaröðina Söngleikjastæla.
Tónleikaröðin sló í gegn í fyrra og er óður til söngleikjanna þar sem ný og gömul söngleikjatónlist fær að njóta sín í meðförum reyndra söng-leikara ásamt hljómsveit.
Gestir kvöldsins eru gleðisprengjurnar í Söngleikjakórnum Viðlagi. Viðlag hefur stimplað sig inn sem einstakur söngleikjakór í íslenskum sviðslistum. Kórinn hefur haldið metnaðarfulla kórtónleika og leiksýningar frá stofnun hans
árið 2021. Þess má geta að frumsamið leikverk kórsins “Við erum hér” sló í gegn í Tjarnarbíó síðasta vetur.
—
Að þessu sinni verða þrennir tónleikar í tónleikaröðinni Söngleikjastælar sem teygja sig yfir allan veturinn þar sem hverjir tónleikar eru með ólíka nálgun á formið. Ekki missa af enn meiri Söngleikjastælum:
2. nóvember: Nýstirnið Salka Gústafsdóttir og þjóðargersemin Jóhann Sigurðarson koma sem gestasöngvarar og flytja sín uppáhalds söngleikjalög.
7. febrúar: Sprúðlandi fjölskyldutónleikar um miðjan dag þar sem börn á öllum aldri fá að syngja með.
SMELLTU HÉR TIL AÐ KAUPA ÁSKRIFT Á ALLA ÞRENNA TÓNLEIKANA Á AÐEINS 14.900 KR

Sigga Eyrún og Bjarni Snæbjörnsson eru ástríðufullir söng-leikarar. Samstarf þeirra hófst á Reykjavík Pride árið 2008 með söngleikjaparinu Viggó og Víólettu. Síðan þá hafa þau lagt hjarta og sál í söngleikjaformið og skemmt landanum á sviðum leikhúsanna, á árshátíðum, í afmælum og víðar. Meðal söngleikja sem þau hafa tekið þátt í eru: Vesalingarnir, Mary Poppins, Kardemommubærinn, Sem á himni, Slá í gegn, Ronja Ræningjadóttir, Jesus Christ Superstar, Frost og Góðan daginn, faggi.

Hljómsveitin er sem fyrr skipuð okkar fremsta tónlistarfólki:
Karl Olgeirsson: hljómsveitarstjóri spilar á píanó, hljómborð, harmonikku o.fl.
Svanhildur Lóa Bergsveinsdóttir á trommur/slagverk
Andri Ólafsson á bassa
