Tónskáldið, píanóleikarinn og þúsundþjalasmiðurinn Davíð Þór Jónsson er staðarlistamaður Salarins árið 2023. Davíð Þór mun af því tilefni bjóða upp á þrenna spunatónleika árið 2023 í Salnum sem teygja sig yfir hálft ár. Allir tónleikarnir fara fram á sunnudegi þegar sólin er hæst á lofti og þegar mánuðir eru við það að renna saman. Fyrsti viðburðurinn fer fram á Alþjóðlega jazzdeginum 30. apríl, miðþáttur í ágústlok og tónleikaveislunni lýkur 29. október en saman munu þessir tónleikar mynda eina lífræna heild.
Hverjir og einar tónleikar einkennast af ævintýrum, forvitni og opnum huga þar sem tónlistarmaðurinn bregst við hljómi Salarins, andrúmslofti gesta, veðrabrigðum og árstíðabundnum sveiflum, hann sækir í tónlistararfleifð og uppsprettur, snýr út úr, fléttar áfram, tvinnar saman stefjum, hljómum og takti, splunkunýjum og eldgömlum. Báðir flyglar Salarins verða nýttir í óvissuferðinni, voldugir Steinway-flygill og Bösendorfer þar sem tónlistarmaðurinn leikur hvort tveggja á hljómborð þeirra og innviði.
Viðburðurinn tekur um tvær klukkustundir. Óhætt er að lofa geysispennandi óvissuferð um lendur tónlistarsögunnar.
Hægt er að kaupa áskrift á alla þrjá tónleika raðarinnar á 10.000 kr.
Davíð Þór er á meðal fjölhæfustu tónlistarmanna landsins, jafnvígur á píanóleik, spuna, tónsmíðar og hljómsveitarstjórn auk þess sem hann leikur á ógrynni hljóðfæra. Hann hefur leikið með flestum tónlistarmönnum landsins og spilað á tónlistarhátíðum um allan heim.
Davíð Þór hefur gert tónlist og hljóðmyndir fyrir fjölda leiksýninga. Hann hefur einnig tónsett útvarpsleikrit og sjónvarpsverk af ýmsu tagi auk þess að semja tónlist fyrir dansverk.. Hann hefur einnig unnið náið með sviðslistafólki og myndlistarmönnum og mætti þar helst nefna Ragnar Kjartansson, en saman hafa þeir skapað þrjú tónlistar- og myndbandsverk: Guð (Sorgin sigrar hamingjuna) frá 2007; The End, framlag Íslands á Feneyjartvíæringnum árið 2009 og The Visitors frá 2012. Davíð Þór samdi tónlist við kvikmyndir Benedikts Erlingssonar, Hross í oss og Kona fer í stríð en fyrir þá tónlist hefur hann hlotið fjölda verðlauna, má þar nefna Norrænu kvikmyndatónlistarverðlaunin og Aubagne-verðlaunin.