23. feb 13:30

Tímans kviða

Píanókvartettinn Negla flytur mögnuð kammerverk frá ólíkum heimum.
3.900 - 4.500 kr.

Tryggðu þér áskrift á átta magnaða Tíbrártónleika fyrir aðeins 18.000 krónur.


Hér fléttast saman mögnuð kammerverk frá ólíkum heimum í  flutningi píanókvartettsins Neglu en hann skipa fjórar ungar tónlistarkonur í fremstu röð; Sólveig Steinþórsdóttir, fiðla, Anna Elísabet Sigurðardóttir, víóla, Hrafnhildur Marta Guðmundsdóttir, selló og Þóra Kristín Gunnarsdóttir á píanó.

Efnisskrá

Frank Bridge (1879 – 1941)
Fantasía fyrir píanókvartett

Lee Hoiby (1926 – 2011)
Dark Rosaleen (2000)

Antonín Dvořák (1841 – 1904)
Píanókvartett nr. 1 í D-dúr

Tónleikarnir eru styrktir af lista- og menningarráði Kópavogsbæjar.

Píanókvartettinn Negla hefur starfað saman í tæp tvö ár og á þeim tíma vakið athygli fyrir metnaðarfulla tónleika og flutning í hæsta gæðaflokki. Eitt af markmiðum kvartettsins er að stefna saman sjaldheyrðum kammerverkum við þekkt stórvirki klassískrar tónlistar líkt og raunin er hér.

Píanókvartett nr. 1 í D-dúr (1875) eftir tékkneska tónskáldið Antonín Dvořák er tvímælalaust þekktasta verk þessara tónleika, verk fullt af unaðslegum laglínum og dramatískum andstæðum þar sem glöggt má heyra hvernig tónskáldið lætur innblásast af þjóðlagatónlist heimalandsins.

Enska tónskáldið Frank Bridge samdi Fantasíu fyrir píanókvartett árið 1910, en verkið, sem ólgar af ljóðrænni fegurð og magnþrungnum stefjum, er í sex stuttum þáttum sem saman mynda eina heild.

Dark Rosaleen (2000) eftir bandaríska tónskáldið Lee Hoiby er innblásið af þekktasta ljóð írska skáldsins James Clarence Mangan þar sem Rósalín hin dökka birtist sem táknmynd fyrir heimalandið. Skáldið James Joyce var einn margra til að heillast af ljóði Mangan og samdi meira að segja við það lítinn lagstúf sem Hoiby nýtir sér í tjáningarríkri og litskrúðugri rapsódíu sinni en verkið ber undirtitilinn Rapsódía um stef eftir James Joyce.

Á undan tónleikunum verður boðið upp á tónleikaspjall klukkan 12:30. Aðgangur á spjallið er ókeypis og öll velkomin.

—————————–



Tónleikaröðin Tíbrá hefur fest sig í sessi hjá tónlistarunnendum sem ómissandi hluti af klassískri tónlistarsenu landsins. Með Tíbrá leitast Salurinn við að bjóða upp á lifandi tónlistarflutning þar sem
hefðbundnum klassískum tónleikum er teflt saman við tilraunir, nýja nálgun og jafnvel ögrun við tónleikaformið. Við val á verkefnum er sérstaklega horft til nýsköpunar og frumlegrar nálgunar á klassískt höfundarverk í framúrskarandi flutningi.

Deildu þessum viðburði

Sjá meira

05. okt / kl. 15:00

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

Sjá meira