23. jún 17:00

Tríó Ómars Einarssonar

Frítt inn kr.

Tríó Ómars Einarssonar Þeir Ómar Einarsson, gítarleikari og Jón Rafnsson bassaleikari hafa starfað saman í tæplega 30 ár. Þeir félagar koma oft fram sem dúó en síðastliðin ár hefur Erik Qvick trommuleikari leikið með þeim og gefur það tónlistinni skemmtilega áferð auk meiri möguleika á efnisvali.

Tónlistardagskrá tríósins einkennist af vönduðum útsetningum þeirra á þekktum jazzlögum auk frumsaminna laga.

Tónleikarnir sem taka eina klukkustund eru í boði Salarins og Lista- og menningarráðs Kópavogs og er aðgangur án endurgjalds.

Ómar Einarsson, gítar
Jón Rafnsson, bassi
Erik Qvick, trommur

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

Sjá meira