Herdís Anna Jónasdóttir, sópran og Bjarni Frímann Bjarnason, píanóleikari frumflytja tvo nýja ljóðaflokka sem og önnur sönglög, þar af nokkur í nýjum útsetningum, eftir tónskáldin Halldór Smárason og Finn Karlsson.

Herdís Anna Jónasdóttir sópran, hefur á ferli sínum öðlast mikla reynslu í flutningi á margs konar tónlist, jafnt ljóðasöng sem óperu, kirkjutónlist og belcanto, söngleikjum og samtímatónlist. Hún er búsett í Reykjavík og starfar sem söngkona og kennari.
Herdís bjó og starfaði lengi í Þýskalandi og hefur víða komið fram, s.s. með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Kammersveit Reykjavíkur, Caput-hópnum, Sinfóníuhljómsveit Færeyja og Sinfóníuhljómsveitinni í Canberra, Ástralíu, sem og með minni kammerhópum og hljóðfæraleikurum, á ýmsum tónlistarhátíðum og í útvarpi og sjónvarpi, bæði hér- og erlendis. Fyrsta sólóplata Herdísar Nýir vængir kom út 2021, hvar hún ásamt Bjarna Frímanni Bjarnasyni flytur íslensk sönglög. Þá hefur hún tekið þátt í frumflutningi og upptökum ýmissa verka, m.a. Niður, þytur, brak eftir Hauk Tómasson við ljóð e. Sjón, og Ó eilífi foss eftir Kolbein Bjarnason við ljóð Steinunnar Sigurðardóttur. Vorið 2024 söng Herdís öll þrjú hlutverkin í frumflutningi óperunnar Óperan hundrað þúsund eftir Þórunni Grétu Sigurðardóttur og Kristínu Eiríksdóttur sem sýnd var við miklar vinsældir í Þjóðleikhúsinu.
Herdís stundaði söngnám við Tónlistarskólann á Ísafirði, Listaháskóla Íslands, Hanns Eisler tónlistarháskólann í Berlín og við óperustúdíó Óperunnar í Zürich. Árin 2013–2018 var hún fastráðin við Ríkisóperu Saarlands, Þýskalandi.
Herdís Anna hefur hlotið ýmsar viðurkenningar fyrir söng sinn, m.a. var hún valin Söngkona ársins í Saarbrücken vorið 2016, hlaut Grímuna fyrir túlkun sína á Víólettu við Íslensku óperuna árið 2019 og Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir söng ársins 2022.
Bjarni Frímann Bjarnason píanóleikari og hljómsveitarstjóri stundaði fiðlunám frá unga aldri, en lauk prófi í víóluleik frá Listaháskóla Íslands. Árið 2009 bar hann sigur úr býtum í einleikarakeppni Listaháskóla Íslands og Sinfóníuhljómsveitar Íslands og lék í framhaldinu víólukonsert Bartóks með sveitinni á tónleikum. Í kjölfarið stundaði hann nám í hljómsveitarstjórn undir handleiðslu Fred Buttkewitz við Hanns Eisler-tónlistarháskólann í Berlín. Bjarni hefur komið fram víða um heim, bæði sem strengja- og hljómborðsleikari. Hann hefur stjórnað flestum hljómsveitum á Íslandi við ýmis tækifæri. Þá hefur hann samið tónlist fyrir leikhús og kvikmyndir bæði hérlendis og erlendis. Bjarni Frímann um árabil komið víða fram sem píanóleikari með söngvurum og sem kammertónlistarmaður m.a. í Berlínarfílharmóníunni og Konzerthaus í Vínarborg.
Bjarni Frímann gegndi um tíma embætti tónlistarstjóra Íslensku óperunnar og stöðu staðarhljómsveitarstjóra Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Hann m.a. starfað sem hljómsveitarstjóri í verkefnum Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands og ferðast með Björk sem hljómsveitarstjóri á tónleikaferðalaginu Cornucopia. Bjarni er í dag búsettur erlendis og er listrænn stjórnandi Bit20 kammerhópsins í Bergen.

Halldór Smárason nam tónsmíðar við Listaháskóla Íslands og Manhattan School of Music, þá sem Fulbright-styrkþegi. Síðustu ár hefur Halldór verið athafnasamur á sviði samtímatónlistar. Meðal nýlegra samstarfshópa má nefna Sinfóníuhljómsveit Íslands, Orchester im Treppenhaus, Wild Up, Caput, Cauda Collective og Strokkvartettinn Sigga. Áður hefur Halldór m.a. unnið með Ensemble intercontemporain, Útvarpshljómsveitum Parísar og Stuttgart auk Oslo Sinfonietta.
Halldór hefur hlotið margvíslegar viðurkenningar fyrir tónsmíðar, m.a. sex vikna dvöl við listamannasetrið Civitella Ranieri á Ítalíu, listamannalaun og ýmsa styrki. Verk hans hafa verið flutt víðsvegar um Evrópu, Bandaríkin og Norðurlönd, til að mynda á tónlistarhátíðunum Manifest í París, Musiikin aika í Viitasaari, Nordic Music Days og Myrkum músíkdögum.
Mörg tónverka Halldórs hafa verið hljóðrituð. Þar má nefna hljómplötuna STARA sem Sono Luminus útgáfan gaf út árið 2020 með verkum hans, einleiksverk fyrir selló á plötu Sæunnar Þorsteinsdóttur árið 2019, einleiksverk fyrir píanó á plötu Anne H. Goldberg-Baldwin árið 2023 og verkið Húsið mitt, á hljómplötu Herdísar Önnu Jónasdóttur árið 2021. Bæði Húsið mitt og STARA voru tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna.
Auk tónsmíða er Halldór virkur píanóleikari og útsetjari og hefur leikið inn á fjölmargar hljóðritanir.

Finnur Karlsson hefur verið kallaður “án nokkurs vafa eitt af eftirtekarverðari tónskáldum yngri kynslóðarinnar” og tónsmíðar hans hafa vakið athygli bæði á Íslandi og erlendis síðustu ár.
Verk hans hafa verið flutt af hópum og einleikurum eins og Barokkbandinu Brák, Cantoque Ensemble, Dönsku útvarpshljómsveitinni, Elju Ensemble, Jónasi Ásgeiri Ásgeirssyni, Kammersveit Reykjavíkur, Loadbang, Nordic Saxophone Collective, Sinfóníuhljómsveit Íslands, Strokkvartettinum Sigga, TAK og Århus Sinfonietta.
Harmonikkukonsert Finns, Accordion Concerto, sem skrifaður var fyrir Jónas Ásgeir Ásgeirsson og Elju Ensemble var valinn verk ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum 2021. Verk Finns hafa tvisvar áður verið tilnefnd í þessum sama flokki. Fjórða hljómsveitarverk Finns, ’till heavens changed have their course’, sem samið var fyrir Dönsku útvarpshljómsveitina var valið sem framlag Danmarks Radio í alþjóðlegu samtímatónlistarkeppninni International Rostrum of Composers í Ungverjalandi 2018.
Finnur Karlsson lagði stund á nám í tónsmíðum við Listaháskóla Íslands og Royal Danish Academy of Music undir handleiðslu Hans Abrahamsen, Úlfars Inga Haraldssonar, Atla Ingólfssonar, Simon Løffler og Niels Rosing-Schow.
Á undan tónleikunum verður boðið upp á tónleikaspjall klukkan 13:00. Aðgangur á spjallið er ókeypis og öll velkomin.