08. sep 20:00

Við eigum samleið

Þessir geysivinsælu tónleikar halda áfram í Salnum
8.100 - 8.900 kr.

Sigga Beinteins, Jogvan og Guðrún Gunnars

Já nú hefja þau ellefta starfsárið sitt með ,VIÐ EIGUM SAMLEIÐ, þau Sigga Beinteins, Guðrún Gunnars og Jógvan Hansen.

Þessir geysivinsælu tónleikar halda áfram í Salnum og nú fá tónleikagestir að heyra fleiri sígildar dægurlagaperlur sem allir þekkja og elska en heyrast of sjaldan í lifandi flutningi.   Hér er hvergi gefið eftir í gæðum söngs og hljóðfæraleik okkar færustu hljóðfæraleikara en eins og áður er hljómsveitarstjórn í höndum Karls Olgeirssonar. Hópurinn flytur þessi lög á einstaklegan hátt og með virðingu og tilfinningu sem eftir er tekið.

Á dagskránni eru meðal annars lögin : Dagný, Heyr mína bæn, Barn, Ég er komin heim , Kveiktu ljós, Bjartar vonir, Lítill fugl, Maria Isabel, Þín innsta þrá og fleiri perlum úr íslenskri dægurlagasögu.

Einstaklega góð og ljúf stemmning hefur einkennt þessa tónleika, því ekki aðeins syngja þau lögin sem allir elska og þekkja, heldur segja þau líka skemmtilegar sögur sem tengjast lögunum, sögur úr bransanum og síðast en ekki síst gera þau svo grín hvert að öðru.

Það eru sem sagt 11 ár síðan þríeykið blés til þessara tónleika, þar sem gömlu góðu íslensku dægurlögin eru í öndvegi, og skemmst frá því að segja að uppselt hefur orðið á hverja einustu tónleika í Salnum í Kópavogi. > Þetta eru tónleikar sem enginn tónlistarunnandi ætti að láta fram hjá sér fara.

FRAM KOMA

Sigga Beinteins

Söngvari

Jogvan Hansen

Söngvari

Guðrún Gunnars

Söngvari

Karl Olgeirs

Hljómsveitastjóri

Deildu þessum viðburði

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

Sjá meira