Ásta Dóra Finnsdóttir er 17 ára nemandi við Menntaskóla í tónlist og Barratt Due Musikkinstitutt í Osló. Hún hefur unnið tugi verðlauna fyrir píanóleik sinn og komið fram víða í heiminum sem einleikari.
Ásta Dóra stefnir nú á sumarferðalög með keppnisþátttöku í Portúgal, Frakklandi og Þýzkalandi.
Ekki missa af þessu einstaka tækifæri til að sjá og heyra framúrskarandi píanóleik hjá upprennandi stórstjörnu í píanóheiminum.
Á efnisskrá einleikstónleika Ástu Dóru eru spennandi og krefjandi píanóverk.
Efnisskrá:
F. Chopin
Pólónesa í As – dúr, op. 53                         
S. Rachmaninoff
Etude-Tableaux í a – moll, op. 39 nr. 6 
F. Chopin
Næturljóð í cís – moll, op. 27 nr. 1                            
S. Prokofjev
Sónata nr. 3  í a – moll,  op. 28                                            
HLÉ
F. Chopin
Næturljóð í Des – dúr, op. 27 nr. 2
F. Liszt
Transcendental Etýða nr. 12
F. Chopin
Ballaða nr. 4 í f – moll, op. 52                                 
M. Ravel
Jeux d’eau (Gosbrunnir)               
				















