Ungir sýningarstjórar, 17 börn á aldrinum 8-15 ára, halda ráðstefnu laugardaginn 18. febrúar næstkomandi þar sem þau bjóða til sín sérfræðingum til að ræða málefni sem tengjast undirbúningi listasýningar sem þau munu sýningarstýra í vor í menningarhúsunum í Kópavogi.
Á ráðstefnuna fá Ungu sýningarstjórarnir til sín þjóðþekkta einstaklinga úr ólíkum áttum til að ræða þær áherslur sem þeir munu vinna með í Vatnsdropanum í vetur og snúa að sameiginlegum gildum höfundaverka hinna norrænu rithöfunda við Heimsmarkmið nr. 5 um jafnrétti kynjanna og nr. 10 um sjálfbærar borgir og samfélög ásamt umhverfismálum.
Ráðstefnan hefst kl. 14 í forsal Salarins og er öllum opin.
Gestir Ungu sýningarstjóranna á laugardaginn verða:
Arndís Þórarinsdóttir | rithöfundur |
Freyr Eyjólfsson | verkefnastjóri hringrásarhagkerfisins hjá Sorpu |
Guðbjörg Gissurardóttir | Í Boði náttúrunnar |
Gylfi Þór Þorsteinsson | aðgerðarstjóri Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið |
Hildur Hákonardóttir | myndlistarkona |
Sigyn Blöndal | réttindasérfræðingur hjá UNICEF á Íslandi |
Vigdís Jakobsdóttir | listrænn stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík |
Sýningarstjórahópinn skipa: Aldís Rós Andrésdóttir, Brynja S. Jóhannsdóttir, Emil Ólafsson, Friðrika Eik Z. Ragnars, Hekla Bjarkey Magnadóttir, Héðinn Halldórsson, Inga Bríet Valberg, Íris Anna Elvarsdóttir, Karen Sól Heiðarsdóttir, Katrín Ólafsdóttir, Matthildur Daníelsdóttir, Saga Ásgeirsdóttir, Sophie Eik Karlsdóttir Stock, Stefanía Rós Sigurðardóttir, Þorbjörg Gróa Eggertsdóttir, Þorbjörn Úlfur Viðarsson, Vaka Margrét Gylfadóttir og Valmundur Rósmar Eggertsson