03. feb 20:00

AXEL FLÓVENT

er Söngvaskáld
5.990 kr.

Einstakur hljóðheimur Axels Flóvent hefur heillað hlustendur um allan heim síðan hann kom fyrst fram á sjónarsviðið árið 2015 með smáskífu sinni Forest Fires en titillag skífunnar er með yfir 70 milljón hlustanir á Spotify. Lög hans hafa heyrst í fjölda sjónvarpsþátta á borð við Grey’s anatomy og Vampire diaries. Íslenskir tónlistarunnendur hafa ekki fengið mörg tækifæri til að upplifa draumkenndan hljóðheim Axels á tónleikum en hann hefur mest spilað á meginlandi Evrópu og í Bretlandi á síðustu árum.  

Söngvaskáld er röð innilegra tónleika þar sem söngvaskáld spila lög sín og segja frá tilurð laganna. Á Íslandi er að finna gífurlegt magn hæfileikaríkra tónlistarmanna sem semja og spila sín eigin lög, í öllum mögulegum tónlistarstefnum. Þessi nýja tónleikaröð mun beina athygli að þessum listamönnum, varpa ljósi á margvíslegar aðferðir listamanna við lagasmíðar og gefa þjóðþekktum lögum meiri dýpt sem fylgir því að heyra sögur af tilurð þeirra. 

UPPHITUN

Horfðu og hlustaðu

Deildu þessum viðburði

24. maí / kl. 20:00

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

24. maí / kl. 20:00