Síðkvöldstónleikar á sumarsólstöðum með tveimur af fremstu tónlistarmönnum landsins. Davíð Þór Jónsson og Eyþór Gunnarsson hafa áður tekið höndum saman í óbeisluðu spunaflugi við frábærar undirtektir. Hér leika þeir á tvo flygla Salarins á bjartasta degi ársins. Ekki missa af þessu undurfallega óvissuferðalagi.
Það var á Djasshátíð Reykjavíkur árið 2009 sem þeir Davíð Þór Jónsson og Eyþór Gunnarsson opinberuðu sitt samspil – sína tvíflygni – sem hafði fram að því að mestu farið fram fyrir luktum dyrum.
Til stóð að nokkrir íslenskir píanistar flyttu stuttar einleiksdagskrár í Norræna húsinu. Allir tóku vel í hugmyndina þegar til þeirra var leitað. Davíð Þór hringdi skömmu eftir að þetta var fastmælum bundið og tilkynnti að þeir Eyþór ætluðu að spila dúett. Djassdagskrárstjórinn fór beint í úrtöluhaminn og benti á að aðeins væri einn flygill i Norræna húsinu. “Haf þú engar áhyggjur af því” var svarið.
Þannig hófst það sem hefur verið likt við “impressjónískt ferðalag hrekkjóttra engla” (V. Linnet MBL 2009) og “óvissuferð á sjóskíðum aftan í stjórnlausum hraðbáti” (E.G. RÚV 2023). Tvíleikur Eyþórs og Davíðs er oft lyginni líkastur. En hann er líka alltaf sannur. Farangurinn skilinn eftir frammi. Strípað músíkalitet slaghörpuleikaranna einu spjarirnar. Í hverju ætli þeir verði?
Pétur Grétarsson
Davíð Þór er meðal fjölhæfustu tónlistarmanna landsins, jafnvígur á píanóleik, spuna, tónsmíðar og hljómsveitarstjórn auk þess sem hann leikur á ógrynni hljóðfæra. Hann hefur leikið með flestum tónlistarmönnum landsins og spilað á tónlistarhátíðum um allan heim.
—
Eyþór Gunnarsson er einn atkvæðamesti tónlistarmaður Íslands. Hann hefur átt langt og farsælt samstarf við ógrynni tónlistarmanna úr flestum geirum tónlistar og er margverðlaunaður fyrir hljómborðs- og píanóleik sinn. Eyþór hefur spilað inn á vel á annað hundruð íslenskar hljómplötur og hefur einnig átt samstarf við fjölmarga erlenda tónlistarmenn og spilað á tónleikum um allan heim.