06. feb 21:00 ~ 06. feb 21:45

Inspector Spacetime | Safnanótt

Salurinn | Forsalur

Dönsum af okkur tærnar með Inspector Spacetime sem tekur forsal Salarins yfir á Safnanótt með sannkallaðri gleði- og orkusprengju! 

Föstudagskvöldið 6. febrúar kl: 21:00 mun hljómsveitin Inspector Spacetime halda ærlegt partý í forsal Salarins. Þessi hressa danssveit er skipuð af þeim Agli Gauta Sigurjónssyni, Vöku Agnarsdóttur og Elíasi Geir Óskarssyni og eru þau þekkt fyrir grípandi taktfasta tóna og lifandi sviðsframkomu.

Aðgangur er ókeypis og öll velkomin þar til húsrúm leyfir.

Viðburðurinn er hluti af dagskrá Safnanætur í Kópavogi

Með því að blanda saman danstónlist, poppi og raftónlist hafa þau útbúið hin fullkomna „kokteil“ af tónlist sem fær fólk til þess að dansa!

Deildu þessum viðburði

Sjá meira

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

01. feb / kl. 13:30

Sjá meira