Sköpum saman í notalegri stund þar sem Axel Ingi kynnir fyrir krökkum og foreldrum grunninn í lagasmíðum. Krakkarnir fá að spreyta sig á að semja laglínur og texta um málefni sem eru þeim hugleikin auk þess sem farið verður í skemmtilegar taktæfingar og aðra leiki
Krakkar á aldrinum 4 – 8 ára eru hjartanlega velkomnir og foreldrar að sjálfsögðu.
Engin krafa er um tónlistarmenntun.
Aðgangur ókeypis og heitt á könnunni.
Sjáumst í Salnum.
Lista- og menningarráð Kópavogsbæjar styrkir Fjölskyldustundir á laugardögum.