Aukatónleikar eftir stórkostlega tónleika í september ’23
Una Torfadóttir er næmur lagahöfundur þrátt fyrir ungan aldur. Með lögum sínum fjallar hún um lífið, ástina og allt það sem á vegi hennar verður á lífsleiðinni. Snarpar laglínur, fallegir textar og einstök nálgun hennar á lagasmíðar hafa skapað henni tón sem á sér engan sinn líkan í íslensku tónlistarlífi. Una hefur komið víða fram síðan hún steig fram á sjónarsviðið. Hún hefur haldið fjölda tónleika um land allt og flutt tónlist sína í sjónvarpi. Hún gaf út sína fyrstu plötu, Flækt og týnd og einmana, árið 2022 og hlaut Kraumsverðlaunin fyrir. Hún hlaut verðlaun fyrir söng ársins í flokknum popp- rokk- rapp og hipp hopp- og raftónlist á Íslensku Tónlistarverðlaununum árið 2023.
Söngvaskáld er röð innilegra tónleika þar sem söngvaskáld spila lög sín og segja frá tilurð laganna. Á Íslandi er að finna gífurlegt magn hæfileikaríkra tónlistarmanna sem semja og spila sín eigin lög, í öllum mögulegum tónlistarstefnum. Þessi nýja tónleikaröð mun beina athygli að þessum listamönnum, varpa ljósi á margvíslegar aðferðir listamanna við lagasmíðar og gefa þjóðþekktum lögum meiri dýpt sem fylgir því að heyra sögur af tilurð þeirra.