14. okt 20:00

UNNSTEINN MANUEL

5.990 kr.

Unnsteinn Manuel er fjölhæfur lagahöfundur. Það getur reynst erfitt að skilgreina tónlist hans en hún á það þó öll sameiginlegt að vera samin af mikilli tilfinningu og með sterkum takti. Á ferli sínum hefur Unnsteinn samið fyrir fjölda hljómsveita sem hann hefur sungið með. Þar að auki hefur hann átt góðu gengi að fagna sem sólóisti. Hann hefur unnið samstarfsverkefni með tónlistarfólki á borð við Aron Can, Emmsjé Gauta, FM Belfast, Hjaltalín og Hermigervil. Unnsteinn var tilnefndur til tveggja Grímuverðlauna í ár, bæði fyrir tónlist og hljóðmynd í leikritinu Íslandsklukkan í leikstjórn Þorleifs Arnar Arnarssonar. 

Söngvaskáld er röð innilegra tónleika þar sem söngvaskáld spila lög sín og segja frá tilurð laganna. Á Íslandi er að finna gífurlegt magn hæfileikaríkra tónlistarmanna sem semja og spila sín eigin lög, í öllum mögulegum tónlistarstefnum. Þessi nýja tónleikaröð mun beina athygli að þessum listamönnum, varpa ljósi á margvíslegar aðferðir listamanna við lagasmíðar og gefa þjóðþekktum lögum meiri dýpt sem fylgir því að heyra sögur af tilurð þeirra. 

Áskrift á Söngvaskáld
Ef keyptir eru miðar á alla tónleika raðarinnar fæst hver miði á 4.000 kr.

UPPHITUN

Horfðu og hlustaðu

Deildu þessum viðburði

24. maí / kl. 20:00

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

24. maí / kl. 20:00