30. ágú 20:00 – 22:00

Valdimar og Örn Eldjárn

5.500 - 6.500 kr.

Valdimar Guðmundsson hefur á síðustu árum haslað sér völl sem einn af ástsælustu söngvurum þjóðarinnar. Hann sló fyrst í gegn með plötunni Undraland með hljómsveit sinni, Valdimar og eftir það hefur hann sungið lög úr ýmsum áttum sem hafa ratað á vinsældarlista útvarpsstöðva landsins.

Örn Eldjárn Kristjánsson hefur alla tíð sótt innblástur í náttúru Íslands. Hann hefur spilað á gítar og bassa með ýmsum hljómsveitum og tónlistarmönnum (Tilbury, Valdimar, Júníus Meyvant, Snorri Helgason o.fl.) í gegnum tíðina og samið tónlist frá unglingsaldri.

Valdimar og Örn hafa undanfarin ár flutt dásamlega einlægt og hugljúft prógram við hin ýmsu tækifæri sem samanstendur af lögum sem Valdimar hefur sungið með hljómsveit sinni í bland við uppáhaldslög þeirra félaga.

Deildu þessum viðburði

05. okt / kl. 15:00

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

Sjá meira