26. okt 20:30

Tvíhöfði – Jón Gnarr og Sigurjón Kjartansson

Tryggðu þér miða með forsöluafslætti fyrir 10. ágúst!
6500 kr.

Hinir ofurgreindu spéfuglar hafa skemmt þjóðinni um áraraðir á ljósvakamiðlunum og má segja að þeir hafi slegið alveg nýjan tón þegar þeir birtust landsmönnum í fyrsta sinn. Tvíhöfði er menningarfyrirbæri sem allir hafa skoðun á og nú heimsækja þeir Jón Ólafsson í fyrsta sinn. Áherslan verður lögð á tónlist þeirra Jóns & Sigurjóns en í gegnum tíðina hafa þeir bæði samið og flutt tónlist sem margir halda upp á. Helgi, persónulegi trúbadorinn, gæti komið við sögu og jafnvel Adolf Hitler.  Það er allt brjálað í bænum og allir stuði í!

Jón Ólafs snýr aftur með spjalltónleikaröðina sína, Af fingrum fram. Röðin hefur fyrir löngu fest sig í sessi hjá tónlistarunnendum landsins en Jón hefur á síðastliðnum fimmtán árum fengið til sín yfir 50 listamenn og hafa fleiri en 30.000 áhorfendur hrifist og hlegið með á þessum einstöku kvöldum Í Salnum.

FRAM KOMA

Jón Ólafsson

Jón Gnarr

Sigurjón Kjartansson

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

12. maí / kl. 13:30

24. maí / kl. 20:00

Sjá meira