07. feb 19:30

Vetrarhátíð: Watachico

Á Vetrarhátíð fara fram tónleikar í Salnum í Kópavogi þar sem Kristofer Rodríguez Svönuson, bæjarlistamaður Kópavogs, mun kynna nýja tónlist undir nafninu Watachico.

Honum til halds og traust verður einvala lið tónlistarfólks. Hljómsveitina skipa: Birgir Steinn Theodórsson, Daði Birgisson, Daníel Helgason, Ingibjörg Turchi, Jón Arnar Einarsson, Matthías Hemstock, Örn Guðmundsson, Rósa Guðrún Sveinsdóttir, Sölvi Kolbeinsson og Tumi Torfason.

Hljómsveitin mun flytja nýjustu verk Kristofers ásamt lögum af fyrstu plötu hans, Primo, sem tilnefnd var til íslensku tónlistarverðlaunanna árið 2020.

Ókeypis er á tónleikana og öll hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir.

Tónleikarnir hefjast klukkan 20. Frá klukkan 19:30 munu félagar úr C-sveit Skólahljómsveit Kópavogs leika fjöruga sveiflutónlist í útsetningu Össurar Geirssonar, heiðurslistamanns Kópavogsbæjar.

Deildu þessum viðburði

Sjá meira

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

Sjá meira