02. mar 20:30

Daníel Ágúst

Þá er komið að því að tvista á sviðinu með Daníel.
6.200 - 6.900 kr.

Það er von á góðu þegar söngvari Gus Gus og Nýdönsk heilsar upp á Jón sinn í Salnum.
Lagabunkinn er orðinn ansi drjúgur eftir gifturíkan feril og líklegt er að lög eins og Lady Shave, Horfðu til himins og Alelda verði á dagskránni. Núllið í Eurovision hefur ekki staðið í okkar manni sem er vís til að flytja ólíklegustu lög þetta kvöld.

Af fingrum fram er spjalltónleikaröð með Jóni Ólafssyni sem oftar en ekki nær gestum sínum á flug með söng, sögum og einstakri kvöldstund.

FRAM KOMA

Jón Ólafsson

Daníel Ágúst

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

Sjá meira