11. feb 20:30

Katrín Halldóra

Katrín Halldóra í hinni sívinsælu spjalltónleikaröð Jóns Ólafssonar Af fingrum fram.
6200 - 6900 kr.

„Stjarna er fædd“, sagði leikdómari Morgunblaðsins að lokinni frumsýningu á söngleiknum Elly þar sem Katrín Halldóra túlkaði lífshlaup söngkonunnar dáðu í leik og söng. Ekki leið svo á löngu þar til hún gaf út hljómplötu með lögum Jóns Múla Árnasonar í glænýjum útsetningum við góðar undirtektir. Það má því segja að austfirska prestsdóttirin  hafi sérhæft sig í léttdjassaðri gullaldartónlist. Nokkuð víst þykir þó að fleiri músíkmolar leynist í pokanum.

Af fingrum fram er spjalltónleikaröð með Jóni Ólafssyni sem oftar en ekki nær gestum sínum á flug með söng, sögum og einstakri kvöldstund.

Uppselt var á fyrri tónleikana með Katrínu sem voru 2. febrúar 2023.

Dagsetningar

11. feb

20:30

FRAM KOMA

Jón Ólafsson

Katrín Halldóra

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

12. maí / kl. 13:30

24. maí / kl. 20:00

Sjá meira