Kristjana er merkileg tónlistarkona og hefur afrekað ansi margt á sínum góða ferli.
Þetta hófst allt á Selfossi þar sem hún söng á sveitaböllunum með Labba í Mánum og fleiri góðum. Svo menntaði hún sig í jazzsöng í Hollandi og hefur sinnt þeirri tónlistarstefnu ansi vel auk þess sem tónskáldið hefur tekið æ meira pláss eftir því sem árin líða. Hún hefur gert ansi góða hluti í leikhúsdeildinni á síðustu árum og samið tónlist fyrir hinar ýmsu sýningar auk þess að leika, spila og jafnvel tónlistarstýra í leiðinni.
Jón Ólafs snýr aftur með spjalltónleikaröðina sína, Af fingrum fram. Röðin hefur fyrir löngu fest sig í sessi hjá tónlistarunnendum landsins en Jón hefur á síðastliðnum fimmtán árum fengið til sín yfir 50 listamenn og hafa fleiri en 30.000 áhorfendur hrifist og hlegið með á þessum einstöku kvöldum Í Salnum.