21. mar 20:30

Kristjana Stefáns

er gestur Jóns Ólafs í af fingrum fram þann 21. mars
6500 kr.

Kristjana er merkileg tónlistarkona og hefur afrekað ansi margt á sínum góða ferli.

Þetta hófst allt á Selfossi þar sem hún söng á sveitaböllunum með Labba í Mánum og fleiri góðum.  Svo menntaði hún sig í jazzsöng í Hollandi og hefur sinnt þeirri tónlistarstefnu ansi vel auk þess sem tónskáldið hefur tekið æ meira pláss eftir því sem árin líða. Hún hefur gert ansi góða hluti í leikhúsdeildinni á síðustu árum og samið tónlist fyrir hinar ýmsu sýningar auk þess að leika, spila og jafnvel tónlistarstýra í leiðinni.

Jón Ólafs snýr aftur með spjalltónleikaröðina sína, Af fingrum fram. Röðin hefur fyrir löngu fest sig í sessi hjá tónlistarunnendum landsins en Jón hefur á síðastliðnum fimmtán árum fengið til sín yfir 50 listamenn og hafa fleiri en 30.000 áhorfendur hrifist og hlegið með á þessum einstöku kvöldum Í Salnum.

FRAM KOMA

Jón Ólafsson

Kristjana Stefáns

Deildu þessum viðburði

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

Sjá meira