Eyþór Ingi er marghamur listamaður. Hann er frábær leikari, stórkostlegur söngvari og óviðjafnanleg eftirherma. Svo semur hann lög og spilar á hljóðfæri þannig að þetta er nánast ósanngjarnt. Það er fengur af þessum Dalvíkingi sem ætlar að endurnýja kynnin við Jón Ólafsson í Salnum og víst er að gáskinn og glettnin munu reka grámygluna á braut og gestir fari gólandi í góðum gír til síns heima að lokinni vel heppnaðri kvöldstund.
Jón Ólafs snýr aftur með spjalltónleikaröðina sína, Af fingrum fram. Röðin hefur fyrir löngu fest sig í sessi hjá tónlistarunnendum landsins en Jón hefur á síðastliðnum fimmtán árum fengið til sín yfir 50 listamenn og hafa fleiri en 30.000 áhorfendur hrifist og hlegið með á þessum einstöku kvöldum Í Salnum.