06. feb

GDRN | Af fingrum fram í 15 ár

Forsala stendur til 10. ágúst 2024!

Hún heitir Guðrún Ýr Eyfjörð Jóhannesdóttir og söng sig inn í hjörtu landans fyrir nokkrum árum.
Æfði fótbolta með Aftureldingu og þótti víst bara fjári góð en meiðsli settu strik í reikninginn. Ólíklegt þykir að knattspyrnuferilinn verði uppistaða spjalls hennar við Jón Ólafsson í þetta sinnið heldur verður músíkin auðvitað í algjörum forgrunni. Rödd Guðrúnar er alveg einstök; djúp, hlý og hljómmikil og það verður gaman að heyra hana óma um Salinn sem er einn besti tónleikasalur landsins og þótt víðar væri leitað. Þeim Jóni til aðstoðar verða Andri Ólafsson og Bergur Einar á bassa og slagverk.

Deildu þessum viðburði

Sjá meira

05. okt / kl. 15:00

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

Sjá meira